
Þá er ég búin að gæsa hana Lísu mína. Við fórum nokkrar skvísur hér af kolleginu og 1 sem kom frá Íslandi og gerðum okkur glaðan dag með henni. Dagurinn í stuttu máli: Hún var sótt heim til sín og átti ALLS ekki von á því. Fórum heim til mín þar sem við snæddum rúnstykki og drukkum bjór í hádegismat. Fórum svo í keilu. Þaðan farið á bar sem við máttum syngja í Karaoke, auðvitað var Lísa látin taka fyrsta lagið. Röltum svo inn Istegade og keyptur ferðavíbrador fyrir gæsina. Áttum borð á kínverskum veitingarstað með Buffay og drykkjum eins og við gátum í okkur látið í 3 tíma :) Fórum á bar í einn koktail og svo á skemmtistað þar sem var dansað frameftir. Eða þangað til að fæturnar voru farnar að gefa sig eftir langan dag og þreytan tók völdin. Þetta var alveg æðislega skemmtilegur dagur.

Við fjölskyldan náðum okkur öll í pesti í síðustu viku, en sem betur fer lágum við eitt í einu. En við hjónin erum bæði á fullu að klára lokaverkefnið í skólanum og skiladagur verkefna er 3.júní og svo koma mamma og pabbi 4.júní og verða hjá okkur í 2 vikur. Taka svo Aniku með sér heim til Íslands og verður hún þar hjá ömmum og öfum á meðan við Sturla klárum prófin okkar. Ég mun útskrifast úr skólanum þann 27.júní :)
Svo ætla ég að stökkva á klakann 2.júlí þar sem Lísa og Helgi gifta sig þann 5. Svo förum við Anika aftur heim til Dk 11. júlí. Sturla verður einn heima á meðan. Kostar því miður allt of marga gengis-étna peninga að fara öll saman til Íslands í þetta skiptið.
Þangað til næst...
Áfram Ísland
1 athugasemdir:
Jeij Heiða bloggaði... það er of flókið að tala bara saman þó að við sitjum við sama borð, það þarf að blogga líka ;)
ísland ísland úber alles... var það ekki einhvern veginn svona???
Sendu inn athugasemd