Já þá er hún Lísa mín búin að gifta sig... var í flotta brúðkaupinu þeirra í gær 5.júlí.
Bæði sem ljósmyndarinn og vinkona. Var með í undirbúningnum að mynda.. stökk svo á undan niður í kirkju að smella af þar áður en Lísa kom.. svo var athöfnin mjög falleg. Fór svo með brúðhjónin í Hljómskálagarðinn og þar í kring að mynda þau, það var rosa fjör hjá okkur :)
Svo var auðvitað haldið í veisluna þar sem ég skipti úr ljósmyndagallanum og í kjól. En smellti auðvitað af þeim út kvöldið .. eða þangað til vélin varð batteríslaus..
Þessi dagur var æðislegur og ekkert smá gaman að vera svona mikið með vinkonu sinni á brúðkaupsdaginn.
Innilega til hamingju Lísa mín og Helgi !
Ein mynd af okkur vinkonunum....

1 athugasemdir:
Vá hvað þau eru flott og þið auðvitað líka.
Knús frá Apavatni...
Sendu inn athugasemd