miðvikudagur, 18. júní 2008

Síðust 2 vikur...í myndum..


Mamma og pabbi komu



Anika fór með afa sínum í Tívolí.



Anika fékk nýjan flottan sundbol



Anika fór á Karíus og Baktus



María mín kom í heimsókn



Mamma verslaði á mig föt :)



Anika Rut mín farin í flugvélina til Íslands með ömmu og afa.

Ég er farin að læra næstu daga... prófið er 24.júní.


Posted by Picasa

fimmtudagur, 5. júní 2008

Celine Dion

Það var æðislega gaman á tónleikunum :)
Posted by Picasa

þriðjudagur, 3. júní 2008

Verkefnaskil og heimsókn

Jæja þá erum við hjónin bæði búin að skila af okkur stóru verkefnunum og líður okkur frábærlega með það :)
Mamma og pabbi koma á morgunn og verða í 2 vikur... við mamma förum á Celine Dion tónleika á fimmtudaginn og ætlum að byrja daginn á að fara upp í skólann minn í Gril-bar sem kennararnir verða í þjónustustörfunum. Þetta er skiladagur skólans á verkefnum (nema við Elín vorum bara svo extra duglegar og skiluðum inn í dag ;) Það verður spennandi að fara með mömmu á barinn í skólanum.
Svo eru prófin okkar 23. hjá Sturlu og 24. hjá mér. Svo við ætlum að nýta okkkur vel barnapíurnar í 2 vikur og læra fyrir þau.
Anika orðin spennt að fá ömmu og afa og talar mikið um það að fara í tívolíið með afa... enda þau búin að tala um það í símanum í meira en mánuð.
En já það verður spennandi næstu vikur...
Heimasíðan okkar verkefninu/fyrirtækinu sem við vorum að gera er: http://d41246.monline.dk

endilega kommentið hvað ykkur finnst.. ágætt að fá smá álit á þessu hjá okkur.

laugardagur, 24. maí 2008

Nóg að gera

Þá er ég búin að gæsa hana Lísu mína. Við fórum nokkrar skvísur hér af kolleginu og 1 sem kom frá Íslandi og gerðum okkur glaðan dag með henni. Dagurinn í stuttu máli: Hún var sótt heim til sín og átti ALLS ekki von á því. Fórum heim til mín þar sem við snæddum rúnstykki og drukkum bjór í hádegismat. Fórum svo í keilu. Þaðan farið á bar sem við máttum syngja í Karaoke, auðvitað var Lísa látin taka fyrsta lagið. Röltum svo inn Istegade og keyptur ferðavíbrador fyrir gæsina. Áttum borð á kínverskum veitingarstað með Buffay og drykkjum eins og við gátum í okkur látið í 3 tíma :) Fórum á bar í einn koktail og svo á skemmtistað þar sem var dansað frameftir. Eða þangað til að fæturnar voru farnar að gefa sig eftir langan dag og þreytan tók völdin. Þetta var alveg æðislega skemmtilegur dagur.


Við fjölskyldan náðum okkur öll í pesti í síðustu viku, en sem betur fer lágum við eitt í einu. En við hjónin erum bæði á fullu að klára lokaverkefnið í skólanum og skiladagur verkefna er 3.júní og svo koma mamma og pabbi 4.júní og verða hjá okkur í 2 vikur. Taka svo Aniku með sér heim til Íslands og verður hún þar hjá ömmum og öfum á meðan við Sturla klárum prófin okkar. Ég mun útskrifast úr skólanum þann 27.júní :)
Svo ætla ég að stökkva á klakann 2.júlí þar sem Lísa og Helgi gifta sig þann 5. Svo förum við Anika aftur heim til Dk 11. júlí. Sturla verður einn heima á meðan. Kostar því miður allt of marga gengis-étna peninga að fara öll saman til Íslands í þetta skiptið.
Þangað til næst...
Áfram Ísland

föstudagur, 2. maí 2008

White Trash party i kvöld


Elín er að fara halda upp á afmælið sitt í kvöld í festrummet og það er White Trash þema.
Ég er búin að finna dressið og ætla ég að láta Bleika litinn verða alsráðandi og netasokkarbuxur við.
Þetta verður Geðveikt stuð.

föstudagur, 25. apríl 2008

Yndislegt föstudags kvöld




Kallinn fer út á djammið og ég sé fram á rólegt föstudags kvöld með lærdóminn.... en NEII!
Þá byrjar vaskurinn á því að flæða upp úr og það gjörsamlega flæðir um allt gólf og eins og sést á mynd... ofan í skúffuna .... ARG!!!

fimmtudagur, 17. apríl 2008